Flosi og Ómar eiga að víkja til hliðar, það er krafa kópavogsbúa

Það er krafa okkar kópavogsbúa að bæði Ómar og Flosi stígi til hliðar sem bæjarfulltrúar og kalli inn varamenn sína, á meðan mál lífeyrissjóðsins eru skoðuð.  Gunnar sjálfstæðismaður gerði það og er það gott, hann sýnir þá ákveðna ábyrgð á atburðarrás með því að víkja. 

En hvað gera Flosi og Ómar??  Þeir segjast ekki ætla að breyta neinu, að þeir hafi verið blekktir, jafnvel þó að gögn hafi komið fram sem segja að þeir hafi vitað allan tímann um málið.  Er þetta bæjarfulltrúar sem við viljum hafa?  Nei segi ég, þeir eiga að víkja.  Ég hvet þá til að sýna manndóm og stíga til hliðar á meðan verið er að skoða þessi mál. 

 


mbl.is Vilja ekki tjá sig um póstinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segja Flosi og Ómar núna??

Það eru nú búin að vera stór orð frá Flosa samfylkingarmanni og Ómari framsóknarmanni, um að Gunnar hafi blekkt þá.  Svo kemur það í ljós að þeir höfðu allar upplýsingar um hvað var í gangi og meira segja hefur Flosi samið svör til FME með framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins.  Þeir Flosi og Ómar voru semsagt vel upplýstir með alla stöðu mála eins og fundargerðir lífeyrissjóðsins sýna fram á, að halda öðru fram eins og Flosi hefur gert er rangt.

 En skyldu þessir herramenn, Flosi og Ómar, bregðast við nýjustu fréttunum?  Eða er þetta bara enn einn blekkingarleikurinn frá fráfarandi bæjarstjóra?  Það er svo auðvelt að skella meiru á Gunnar þessa dagana, það er einhvern veginn í tísku núna, eða hvað?

Ég geri kröfu á að Flosi samfylkingarmaður geri grein fyrir sínu máli en vísi ekki bara alltaf í "vonda karlinn" hann Gunnar sem blekkt aumingja Flosa sem í góðri trú vissi ekki betur, nema kannski að hafa sjálfur skrifað svörin til FME eins og kemur fram í frétt morgunblaðsins.  Þýðir það að Flosi vissi þá ekki um málið eða var hann þá bara í hlutverki ritara og hjálparmanns framkvæmdastjórans, en ekki sem stjórnarmaður og ákvörðunartaki í stjórn lífeyrissjóðs kópavogs.  Geta menn verið í mismunandi hlutverkum á sama tíma??

það skyldi ekki vera svo að Gunnar færi með rétt mál eftir allt saman.  Ættu þá Flosi og Ómar ekki að víkja til hliðar á meðan rannsókn á málinu fer fram?  Alla vega var það rétt ákvörðun hjá Gunnari að víkja á meðan.

Ég sem kópavogsbúi geri þá kröfu til Flosa og Ómars að þeir víki báðir, eins og Gunnar, á meðan rannsókn stendur yfir á þessu máli. Annað er óeðlilegt. 

Nema þetta sé eins og oft áður hluti af málatilbúnaði samfylkingarmanna í kópavogi, sem aldrei gera neitt en sjá allt til foráttu sem sjálfstæðismenn gera. 

 Höfundur býr í kópavogi og er sjálfstæðismaður, bara svo það komi fram.


mbl.is „Og þá erum við í vanda"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu nú hæg!!

Er þá verið að segja manni, að það sé ekki eining innan Stoða með yfirlýsingarnar??  Gæti verið að einhverjir stjórnarmenn hafi skilning á að ríkið getur ekki lánað ef nægar tryggingar eru ekki fyrir hendi?? 

Skrítið, ætli við almenningur hafi lent í því að lánastofnanir hafi krafist meiri trygginga af manni heldur en maður sjálfur taldi nauðsynlegt??

Það getur þó ekki verið að ríkið sé að beita sömu aðferðum á bankana og þeir á almenning?


mbl.is Ekki eining í stjórn Stoða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir eru spes þarna austurfrá!

Ja hvur andsk... segi ég nú bara, nærbuxnaveiðar.  En eftir að hafa séð þætti frá Japan um ýmsar "keppnisgreinar" þá er spurning hvort þessi hafi verið að "æfa" sig fyrir einhvern raunveruleikaþátt sem er á dagskrá??
mbl.is Á nærbuxnaveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi hjá þeim??

Ég bara spyr, hvað er í gangi hjá þeim?  Er málið ekki bara að þeir fóru of geyst í fjármögnun á of mörgum félögum og dreifðu kröftum sínum of víða.  Svo þegar eitthvað kemur upp á þá geta þeir ekki dregið til baka og standa veikari fyrir vikið.  Það er greinilegt að trúverðugleiki baugsmanna og annarra sem standa að baki Glitni er ekki nægur til að hafa fengið skammtíma lán eins og þeir vildi.  Jú, því þá hefðu þeir getað haldið áfram sínum leik. 

En þegar komið er með almannafé sem við skattborgararnir eiga þá eru gerðar aðrar kröfur, sem betur fer.


mbl.is Kallaði ráðherra og þingmenn á fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa blaðamenn mbl.is heyrt talað um Púka!!!

það hlýtur að vera lágmarkskrafa okkar sem lesa mbl.is að blaðamenn láti púka lesa yfir fréttirnar.  Þessi frétt er ekki löng en tvær mjög slæmar innsláttarvillur koma fram í henni. 

p.s. af hverju notið þið ekki púkann sem fylgir með í blogg kerfinu???


mbl.is Weber dæmdur í fangelsi og 103 milljóna sekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt of vægur dómur!!

Þetta er allt of vægur dómur að mínu mati.  Ég bara spyr, myndi sama einstaklingur fá svona vægan dóm í Bretlandi eða USA fyrir sömu sök?  Það er verið að senda þau skilaboð út að það sé í lagi að ráðast á lögregluna, nokkuð sem á ekki að viðgangast.  Ef við sendum ekki harðari skilaboð til þeirra sem brjóta af sér þá endar þetta með því að við verðum með fáliða lögreglulið, því það vill enginn vinna í þessar vinnu sem býður upp á slíkt lélegt atvinnuöryggi, eða þá að við endum með vopnaða lögreglu svo hún geti varið sig. 

Er það þetta sem við viljum?  Allavega ekki ég.


mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á lögreglumann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

stattu á þínu Guðjón

Í guðana bænum stattu á þínu Guðjón annars taka þessi öfgamenn sem komu úr Nýju afli yfir flokkinn.  Maður hefur smá trú á því sem þið eruð að gera (ég kýs ykkur samt ekki) og þið eigið ákveðinn hljómgrunn í okkar samfélagi.  En ekki þessi öfgastefna sem birtist því miður í tali manna eins og Jóns og Magnúsar þegar þeir tjá sig um innflytjendamál. 
mbl.is Guðjón Arnar: Miðstjórnin skiptir ekki verkum milli þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með það, báðir aðilar

Ég segi bara, til hamingju með að miðlunartillagan hafi verið samþykkt.  Nú er bara að vona, að okkur beri gæfa til að horfa til þess að hér er verið að leiðrétta launamun hjá stétt þegar horft er á námstíma sem þær bera að baki.  Ég óttast að nú komi aðrar stéttir og krefjist 22% hækkunar eins og ljósmæður fengu sbr. það sem heyrðist í einni heilbrigðisstéttinni um daginn. 
mbl.is Miðlunartillagan samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Helgi Jóhannesson

Höfundur

Helgi J
Helgi J

Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og almenna umræðu um samfélagsmál.  Áhugamaður um íþróttir almennt en þó meira um jaðarsportið.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband