Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ég vona að tillagan verði samþykkt, 6 ára nám á meira skilið en 4 ára nám

Ég vona svo sannarlega að tillagan verði samþykkt enda eiga ljósmæður það skilið.  það er að sjálfsögðu réttindamál allra launþega að fá borgað fyrir sína vinnu og þá menntun sem það hefur lagt að baki.  Við sem höfum farið í lengri nám erum að því til að skapa okkur betri lífskjara og eiga möguleika á hærri launum, svo einfalt er það.  Að starfsstétt sem krefst 6 ára háskólanáms sé að fá laun sambærileg öðrum stéttum með 4 ára nám að baki er ekki rétt, svo einfalt er það. 

Við gætum snúið þessu á þá leið að bera saman tímakaup húsasmiðasveins og húsasmíðameistara, myndum við borga þessum tveimur mönnum sömu laun eða myndum við finnast það réttlátara að sá aðilinn sem er með meistararéttindi myndi fá hærri laun?  Ef ég man rétt þá er jú um 2 ára nám til að ná meistararéttindum. 

Ég bara spyr?


mbl.is Ljósmæður með auga á öðrum launum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafði Davíð Oddsson þessi áhrif!!

Gengi krónunnar hækkar efti lækkunarhrinu.  Hver er skýringin??  Ekki getur það verið að kóngurinn hafi þessi áhrif eftir viðtalið í gær, að gengið hækkar fyrir vikið?  Nú væri gaman að heyra í öllum sjálfskipuðu álitsgjöfum um skýringarnar á þessum hækkunum.  Við hin, þessi venjulegu, fögnum því að sjálfsögðu.


mbl.is Allt á uppleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er nú snöktum skárra að horfa á stelpurnar...

Það er nú snöktum skárra að horfa á stelpurnar heldur en gömlu karlana.  Ég ætla ekki að fara út í samanburð á tónlist enda er Zeppelin mörgum hæðum fyrir ofan stelpurnar.  En með að horfa á, ja þá hafa stelpurnar vinninginn.
mbl.is Zeppelin laut í gras fyrir Kryddpíunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins sköpuð rétt umgjörð utan um starf þjálfara

Það eru gleðifréttir fyrir okkur valsmenn að félagið hafi framlengt samning við Willum enda hefur hann gert góða huti fyrir Val.  Ég hefði viljað sjá eins og aðrir valsmenn stóran titill á þessu ári en það gengur bara ekki alltaf upp.  Við munum enda í efstu sætum sem er jú ágætis árangur.  Eigum við ekki að segja bara "við tökum þetta næst"!
mbl.is Willum með Val til 2012
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það ER gott að búa í kópavogi - næst verðum við sjálfbær

Eins og okkar ágæti bæjarstjóri hefur margoft sagt, þá er gott að búa í kópavogi.  þetta endar með því að við þurfum ekki að leita út fyrir bæjarmörkin eftir fæði.........  Ætli Gunnar hafi sjálfur komið seiðunum fyrir????????????
mbl.is Flundra í Kópavogslæk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Muna ekkert helv.... Bíb núna!!

Takið hugsanirnar frá Óla Stef inn í leikinn og ekkert bíb núna.  Slæm samlíking hjá kjartani að tala um rigningu og formúlu, ég er viss um að Ferrari menn og Raikonen hafa eitthvað við þetta að segja...
mbl.is Kjartan Sturluson: Býst við því að það verði nóg að gera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir allt um skrif DV

Þessi yfirlýsing frá Íþróttasambandi fatlaðra segir allt sem segja þarf um þann fréttaflutnign sem DV stundar.  Það er greinilegt að tilgangurinn helgar meðalið, jafnvel þó svo að sannleikurinn sé of oft mjög frjálslegur.  Það er greinilegt að DV ætlar að fara í sama farið og um árið, að skrifa rætnar fréttir sem eiga ekki stoð í veruleikanum. 
mbl.is Einum ráðherra var boðið til Peking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Helgi Jóhannesson

Höfundur

Helgi J
Helgi J

Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og almenna umræðu um samfélagsmál.  Áhugamaður um íþróttir almennt en þó meira um jaðarsportið.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband